Skilmálar

Greiðslufyrirkomulag

Tekið er á móti greiðslum með kreditkortum í gegnum öruggt greiðslusvæði þar sem kortanúmer eru dulkóðuð. Tekið skal fram að Oskirogthrif.is geymir ekki né tekur á móti kortanúmerum, allar slíkar upplýsingar fara í gegnum öruggt greiðslusvæði hjá viðurkenndum þjónustuaðila. Komi í ljós að einhver vara sé ekki til og óvíst hvenær megi eiga von á henni, verður haft samband við kaupanda og endurgreiðsla fyrir henni gerð í gegnum millifærslu á heimabanka.

Afgreiðsla á vörum

Eftir að viðskiptavinur hefur gert og gengið frá pöntun á oskirogthrif.is fær hann og oskirogthrif.is staðfestingu um pöntunina á tölvupósti. Venjulegur afhendingarferill á sendum pöntunum er 2-4 virkir dagar. Tölvupóstur er sendur til kaupanda þegar pöntunin hefur verið tekin til og er tilbúin til afhendingar. Heimsendingar á höfuðborgarsvæðinu eru sendar út eftir kl. 17:00 og fær kaupandinn þá sms þegar varan er á leiðinni til viðkomandi. Öllum pöntunum utan höfuðborgarsvæðisins er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Oskirogthrif.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Oskirogthrif.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Vöruskil

Almennur skilafrestur á vörum eru 14 dagar og er hægt að skila vörum gegn framvísun reiknings/pöntun. Almennur skilafrestur miðast við að varan sé óopnuð og í upprunalegum umbúðum. Ef ske kynni að varan sé gölluð greiðir Oskirogthrif.is sendingarkostnaðinn sem fellur til við skil á vöru en annars er sendingarkostnaður á ábyrgð kaupanda. Útsöluvörum er ekki hægt að skila. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.

Persónuupplýsingar

Oskirogthrif.is afhendir hvorki persónuupplýsingar né netföng til þriðja aðila. Þau netföng sem skrá sig á póstlista Oskirogthrif.is eru eingöngu notuð til að senda notendum upplýsingar um tilboð og upplýsingar um vörur og/eða viðburði.

Vinsamlegast athugið að allar upplýsingar og verð á vefnum eru birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl.

Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Almennt um netverslunina

Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti. Oskirogthrif.is er rekið af Þriffélagið óskir og þrif ehf, kt. 640418-1760 og er hægt að hafa samband í gegnum oskirogthrif@gmail.com.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law